Á 1. stigi Knapamerkjanna á knapinn að hafa vald og þekkingu á eftirfarandi þáttum
Bóklegt
Skilji grunnþætti í atferli, eðli og hegðun hesta
Þekkja líkamsbyggingu og heiti á líkama hestsins
Kunna skil á helstu öryggisatriðum er lúta að hestahaldi og búnaði fyrir hest og knapa
Þekkja gangtegundir íslenska hestsins
Þekkja helstu reiðtygi, notkun þeirra og umhirðu
Þekki helstu ásetur og rétt taumhald
Verklegt
Að undirbúa hest rétt fyrir reið
Geti teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
Geti farið á og af baki beggja megin
Kunni rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
Geti setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
Geti framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
Geti skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi ásetu)
Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum